Undirbúningur kominn vel á veg fyrir Bíladaga á Akureyri
Maí 17, 2013
Bíladagar verða haldnir á Akureyri frá 13. -17. júní næstkomandi. Bíladagar eru einn stærsti íþróttaviðburður sem haldin er á Íslandi og er einskonar árshátíð allra áhugamanna um bíla, hjóla og mótorsports almennt. Bílaklúbburinn býður upp á sér tjaldsvæði þessa daga fyrir gesti sína þar sem fólk getur fengið að gista á svæðinu og fengið gúmmífnykinn beint í æð alla dagana. Á svæðinu er einnig boðið upp á opnar æfingarbrautir fyrir alla gesti Bíladaga sem og Go-Kart leigu. Nánari upplýsingar um dagskrána má fá á vef Bílaklúbbs Akureyar.
Deila á FacebookHleð nýjum spjöldum.....